Náttúruskóli Reykjavíkur er þriggja ára þróunar- og samstarfsverkefni Umhverfis- og samgöngusviðs Reykjavíkur, Menntasviðs Reykjavíkur, Leikskólasviðs Reykjavíkur, Skógræktarfélags Reykjavíkur og Landverndar. Verkefnið hófst í ágúst 2005.
Markmið
Leiðir
- Náttúruskólinn er miðstöð þekkingar og upplýsinga um útinám og umhverfismennt.
- Náttúruskólinn veitir aðstoð og ráðgjöf við skipulagningu og aðlögun útináms að þörfum skóla.
- Náttúruskólinn styður kennara við að byggja upp útikennslu.
- Náttúruskólinn tengir saman aðila sem standa að útikennslu og fræðslu á vettvangi og hefur frumkvæði að samstarfi um útinám.
- Náttúruskólinn aðstoðar við framsetningu fræðsluefnis og kemur fræðslutilboðum á framfæri við skóla.
- Náttúruskólinn býður upp á dagskrá sem kennurum og nemendum stendur til boða.
Hugmyndin að baki Náttúruskólanum er ekki ný og undirbúningur að stofnun skólans stóð yfir í þrjú ár.
Upplýsingar um verkefnisstjórn